
Ráðstöfun vegna Covid19
Félagsmiðstöðvar eldri borgara í Kópavogi - Boðinn – Gjábakki – Gullsmári
Eftirfarandi starfssemi verður í félagsmiðstöðvum eldri borgara sem tekur mið af nýjum reglum um samkomutakmarkanir vegna Covid-19, frá og með 2.nóvember til og með 17.nóvember 2020.
- Matarþjónustan fellur niður. Frekari upplýsingar um heimsendan mat má nálgast í síma 441-0000.
- Allt skipulagt félagsstarf fellur niður.
Hægt er að hafa samband fyrir frekari upplýsingar í
síma 441-9900.
Kaffistofan verður opin fyrir þá sem vilja koma í kaffibolla og spjall. Hámarksfjöldi miðast við 10 manns, 2m bil á milli gesta og gestir notast við andlitsgrímur. Skráning í síma 441-9900.
Athugið að við hvetjum fólk til þess að mæta ekki ef gestir eru eftirfarandi;
- Eru í sóttkví.
- Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku).
- Hafa verið í einangrun vegna Covid-19 smits og eru ekki liðnir 14 dagar frá útskrift.
- Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang ofl.).
Við erum öll almannavarnir og verum það áfram !